Jørgen Peder Steffensen jarðeðlisfræðingur og prófessor hjá Niels Bohr Institutet, Københavns Universitet fjallar í þessu stutta (4 mínútur) en fróðlega myndbandi um rannsóknir á borkjörnum frá Grænlandsjökli.
Dr. Jørgen Peder Steffensen hefur meðal annars starfað mikið með íslenska eðlis- og jöklafræðingnum Dr. Sigfúsi Johnsen, og jarðefnafræðingnum Dr. Árnýju Erlu Sveinbjörnsdóttur.
Hann fræðir okkur meðal annars á því að fyrir árþúsundi hafi hitinn á Grænlandi verið 1,5 gráðum hærri en í dag, og að mjög erfitt sé að sýna fram á hvort núverndi hlýindi stafi af mannavöldum eða eigi sér náttúrulegar orsakir.
Myndbandið er 4 mínútur að lengd. Það er fróðlegt að heyra hvað þessi virti vísindamaður hefur að segja.
“We live in the coldest period of the last 10.000 years”
– Fyrir árþúsundi var hitinn á Grænlandi 1,5 gráðum hærri en í dag.
– Hitinn var ef til vill 2.5° C hærri fyrir 4000 árum.
– Rannsóknir víðar í heiminum styðja þessa mynd.
– Mjög erfitt að sýna fram á hvort núverndi hlýindi stafi af mannavöldum eða eigi sér náttúrulegar orsakir.
(Smella á bláa hnappinn [Watch on Vimeo] til að opna myndskeiðið).
Ítarefni…
>>>Einn allra áhugaverðasti fyrirlestur sem ég hef hlustað á<<<
Heldur lengri fyrirlestur en hér fyrir ofan, en fullur af fróðleik:
Jørgen Peder Steffensen, prófessor hjá Niels Bohr stofnunni við Kupmannahafnarháskóla, er einstaklega góður fyrirlesari og spjallar hann hér um rannsóknir á ískjörnum frá Grænlandsjökli og Suðurskautslandinu.
Einstaklega áhugavert og auðskilið öllum. Eiginlega frábært
Fyrirlestrinum er skipt í fjóra hluta hjá YouTube. Ekki treysta á að YouTube raði hlutunum í rétta röð, heldur velja hér fyrir neðan.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum félagsskapar sem kallast því skemmtilega nafni Science & Cocktails Copenhagen. Grænklæddi maðurinn í byrjun er auðvitað ekki Jørgen Peder Steffensen heldur kynnirinn og dálítið meira sem kemu í ljos í lok fjórða hluta
Jörgen svarar tveim spurningum, meðal annars um gróður sem fannst undir hábungu jökulsins á 3ja km dýpi, og síðan eru huggulegir tónleikar með “grænklædda manninum” sem reynist vera Andy Benz:
Hvað er þetta Science & Cocktails?