Gömul útgáfa. Geimskot Frakka á Íslandi 1964 & 1965 Frumútgáfa: 25.11.2006 Breytt: 04.12.2006
Hinn 18. nóvember 2006 skutu þrír fræknir félagar heimasmíðaðri eldflaug frá Vigdísarvöllum. Þá rifjaðist upp atburðurinn sem hér verður lýst. Vefsíðan er í vinnslu og væri mikill fengur í upplýsingum frá öllum þeim er þekkja til málsins.
Vefsíðan er geymd á heimatölvu með frekar hægvirkri tengingu (256 kb/s upp) og skýrir það hve lengi myndir eru að hlaðast inn. Komi fram rautt X í stað myndar má reyna að smella á [Refresh] hnappinn.
Það kemur mörgum á óvart að heyra að franskir vísindamenn hafi skotið fjórum eldflaugum út í geiminn frá Íslandi fyrir rúmlega fjórum áratugum. Út í geiminn? Já, og meira að segja um 100 kílómetrum hærra en Alþjóða geimstöðin (Internartional Space Station) svífur umhverfis jörðu. Eldflaugarnar féllu í hafið langt fyrir sunnan land. Sumarið 1964 settu frönsku vísindamennirnir frá CNES (Centre National d'Etudes spatiales) upp búðir sínar á Mýrdalssandi á móts við Höfðabrekku og skutu upp tveim eldflaugum. Sumarið eftir settu þeir upp búðir á Skógasandi og skutu aftur upp tveim eldflaugum. Höfundur vefsíðunnar var þarna á staðnum á vegum Almannavarna ríkisins, (sem auðvitað var bara yfirskin til að fá leyfi til að komast í návígi við þennan einstæða atburð J), og hafði tækifæri til að njóta geimskotanna, enda vantaði ekki áhugann. Myndavélin var auðvitað með í för. Tilgangur geimskotanna var að rannsaka Van Allen beltið, en þar sem það kemst næst jörðu við heimskautin myndast oft norðurljós. Rafagnir sólvindsins festast í Van Allen beltinu, þjóta fram ag aftur milli segulskauta jarðar, og mynda norðurljós þegar þær rekast á loftagnir í háloftunum, segir í flestum kennslubókum. Nú á tímum er reyndar talið að atburðarrásin sé töluvert flóknari. Ísland hentaði vel til þessara rannsókna frönsku vísindamannanna vegna legu sinnar nærri norðurljósabeltinu, og væntanlega einnig vegna eyðisandanna á Suðurlandi og opna hafinu þar fyrir sunnan. Eldflaugarnar voru af Dragon-1 gerð. Þær voru tveggja þrepa. Neðra þrepið kallaðist Stromboli, en efra þrepið Belier.
Alls var skotið 55 Dragon flaugum víðs vegar um heim á árunum 1962-'73. Þrjú skot misheppnuðust, en 52 tókust vel.
Árið 1964 var skotpallurinn á sandinum á móts við Höfðabrekkuheiði, en skammt austan Skóga árið 1965.
Gríðarstórir loftbelgir með mælitækjum voru sendir á loft annað slagið. Vísindamennirnir voru í stöðugu sambandi við Háloftadeild Raunvísindastofnunar Háskólans, sem um áratugaskeið hefur rekið Segulmælingastöðina í Leirvogi, en skotið var þegar mælitæki gáfu til kynna að árangur af geimskotinu yrði væntanlega góður. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur stóð vaktina í Reykjavík vegna fyrsta skotsins og fylgdist með mælingum frá forláta segulmæli sem nýlega hafði verið þróaður á Raunvísindastofnun. Á síritanum, sem var í Gömlu loftskeytastöðinni á Melunum, var ferill sem sýndi breytingar í segulsviði jarðar. Þessar breytingar voru mælikvarði á það sem var að gerast í háloftunum. Þegar Þorsteinn sá verulegar breytingar lét hann vísindamennina á sandinum vita um talstöðvarsamband. Segja má að Þorsteinn hafi nánast stjórnað geimskotinu og sagt til hvenær skyldi skjóta. Við næstu skot notuðu Frakkarnir segulmæli sem Raunvísindastofnun lánaði þeim.
Myndir:
Fyrstu myndirnar hér fyrir neðan tók höfundur vefsíðunnar árið 1964 þegar hann var 19 ára. Myndir frá 1965 leynast vonandi enn einhvers staðar í kössum eða kirnum, en verða settar hér ef þær finnast. Neðst er skemmtileg mynd ásamt kynningu á helstu vísindamönnunum sem Þorsteinn Sæmundsson tók sumarið 1965.
Myndirnar hér fyrir neðan eru nokkurn vegin í tímaröð.
Hjálmar Sveinsson þungt hugsi í forgrunni, enda mikil spenna í loftinu síðla sumars árið 1964. Ljósm. ©ÁHB
Skotpallurinn undirbúinn Ljósm. ©ÁHB
Sækkun úr myndinni hér að ofan. Hjálmar Sveinsson kemur gangandi. Ljósm. ©ÁHB
Fyrsta flaugin
Dragon D10
Ljósm.
©ÁHB
Hún er rennileg séð frá þessu sjónarhorni. Dr. Mozer er hægra megin. Ljósm. ©ÁHB
Eldflaugin er yfir 7 metra löng og 1100 kg að þyngd. Ljósm. ©ÁHB
Á spjaldinu sem lokar eldhólfinu stendur Stromboli. Dr. Forrest Mozer í bakgrunni. Ljósm. ©ÁHB
Rigning. Frakkarnir með sjóhatta. Ljósm. ©ÁHB
Mýrdalssandur Space Center. Takið eftir loftnetsspeglunum sem voru notaðir til að taka á móti merkjum frá eldflauginni. Ljósm. ©ÁHB
Lyft í skotstöðu Ljósm. ©ÁHB
Komin í skotstöðu. Ágúst Valfells fylgist með. Ljósm. ©ÁHB
Stefnt til himins Ljósm. ©ÁHB
Sigurður Ágústsson lögregluþjónn. Þekktur sem Siggi Palestína, en hann var um skeið á vegum Sameinuðu þjóðanna í Palestínu. Mikið ljúfmenni. Fulltrúi yfirvaldsins uppi á Höfðabrekkuheiði. Farið var með Harley Davidsson upp á topp vegna VHF talstöðvarinnar sem var á hjólinu. Það var ekki auðvelt mál, en hafðist. Gufunes burðastöð í forgrunni. Svona stöðvar voru gemsar þess tíma, en á Gufunesbylgjunni mátti tala yfir fjöll og firnindi með endurkasti frá jónahvolfinu sem Frakkarnir voru að rannsaka. Ljósm. ©ÁHB
Yfirmennirnir eru að taka ákvörðun hvort skjóta eigi. (Annars staðar hefur komið fram að eiginlega fór ákvörðunin fram í Reykjavík). Nokkur óvissa var fyrir þetta skot. Skyndilega birtust óvenjulega mikil norðurljós og þá var ekki til setunnar boðið og skot undirbúið. Eldflaugin stefndi beint í miðju norðurljósakórónu. - Merkilegt hve undirritaður fékk að skoða sig um inni í stjórnstöðinni. Annað hvort var hann ósýnilegur, eða Frakkarnir svona einstaklega ljúfir. Ljósm. ©ÁHB
Eldflauginni skotið á loft. Linsan á myndavélinni var opin í nokkrar sekúndur. Ekki var notaður þrífótur, en myndatökumaðurinn notaði það sem hendi var næst af búnaði stöðvarinnar til að styðja myndavélina. Linsan er 50 mm, og sést af því að myndin er tekin skammt frá skotstað. Gríðarlegur hávaði ! Ljósm. ©ÁHB
Ánægðir leiðangursmenn á leið heim í hótel seint að kvöldi eftir velheppnað skot. Ljósm. ©ÁHB
Þessa mynd tók Dr. Þorsteinn Sæmundsson árið 1965. Ljósm. © Þorsteinn Sæmundsson
Þorsteinn segir svo frá: "Á myndinni sjást (til vinstri) Forrest Mozer, síðar prófessor við Berkeley háskóla, og (fyrir miðju) prófessor Jacques-Emile Blamont, einn fremsti geimrannsóknamaður Frakka og sá sem stjórnaði þessum leiðangri. Hann var þá yfirmaður tækni- og vísindadeildar frönsku geimrannsóknastofnunarinnar CNES (Centre National d'Études Spatiales). Mig minnir að hann hafi átt drýgstan þátt í að Frakkar komu sér upp eldflaugaskotstöð í Kourou í frönsku Gajana (Guiana)".
Þorsteinn Sæmundsson fékk þennan pening til minningar um geimskotin og í þakklætisskyni fyrir veitta aðstoð.
Nokkur minningarbrot:
Fyrra sumarið var Ágúst Valfells kjarnorkuverkfræðingur forstöðumaður Almannavarna, en síðara sumarið Jóhann Jakobsson efnaverkfræðingur.
-
Á söndunum var auðvitað eins konar
mini-Frakkland og ríktu þar franskar hefðir. Meðal annars var auðvitað drukkið
rauðvín með mat og þegar tilefni var til. Yfirleitt virtu laganna verðir þetta,
en eitt sinn lenti íslenski túlkurinn í því að vera stöðvaður á þjóðveginum
eftir að hafa innbyrt fáein glös. Nú voru góð ráð dýr, eða hvað? Hann greip til
þess ráðs að þykjast ekki skilja íslensku og talaði bara frönsku, enda nýbúinn
að smyrja málbeinið með franskri goggolíu. Laganna vörður skildi ekki neitt, og
til að forðast óþarfa vandræði gaf hann honör og kvaddi hinn frönskumælandi mann
með virktum.
-
Í vinnslu ... ... ... Meira síðar ... ... ... Á síðuna verður bætt við upplýsingum jafnóðum og þær berast ...
Krækjur:
Vefsíða íslensku eldflaugasmiðanna Er jörðin að hitna? Ekki er allt sem sýnist Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? Hvers má vænta á næstu árum?
Örlygur Richter teiknaði þessa mynd af undirrituðum árið 1966
Ágúst H. Bjarnason, verkfr agust (hjá) rt.is
|
|